Drúídar á Íslandi
Hin forna Drúídregla var stofnuð í Englandi 1781 sem lokaður félagsskapur. Saga Reglunnar er sú að hún var sett á laggirnar af Henry Hurle, byggingameistara og landmælingamanni í London, á fundi á kránni Kings Arms í Poland Street í London.
Með tímanum hefur Reglunni vaxið ásmegin og er nú að finna í mögum löndum víðsvegar um heiminn, s.s. Bandaríkjunum, Englandi, Þýskalandi, Svíþjóð, Danmörku og Noregi.
Drúid Reglan barst til Íslands árið 1996 frá Noregi en þá var fyrsta stúkan stofnuð í Reykjavík. Frá upphafi hefur verið mikill kraftur í uppbyggingu Reglunnar hér á landi og því leið ekki langur tími frá landnámi Reglunnar að önnur stúka var stofnuð í Reykjavík 1998. Þriðja stúkan var síðan stofnuð í Hveragerði árið 2002 og stórstúka leit dagsins ljós árið 2008.
|